|
|
 |
 |
Wednesday, May 16, 2012
Þessi blessuðu börn, geta ekki valið sér góðan dag til að vera veik. Ég er búin að vera að undirbúa tuskudag í vinnunni og átti að vera í dómnefnd og svaka spenningur kominn fyrir daginn. En neeeeeeeii Melkorka ákvað að vakna ælandi í morgun, ældi tvisvar og sofnaði svo aftur og svaf til rúmlega eitt, ældi einu inni eftir það en hafði ekkert til að æla og situr svo bara og horfir á sjónvarpið eftir það og ég fór ekkert því í vinnuna í dag Einn skemmtilegasti dagur ársins og ég sit bara heima meðan aðrir skemmta sér, sjibbí. Er líka búin að fá nokkur símtöl í dag, sms og svona frá vinnunni.
Það er svo frí á morgun þannig við verðum bara heima á morgun og svo ætti skottan að vera orðin hress á föstudag. Þá er stefnan að fara út um kvöldið og hitta Dröfn og fleiri en hún verður á landinu og á að halda smá djamm, borða saman og drekka. Eins gott að ég fari ekki að veikjast þá líka Tóta og Óskar að skilja eftir sig veikindaslóðina, Kata eitthvað hálf slöpp, Melkorka ælandi og ég gæti nú verið hressari, spurning hvort það sé bara fýlan að vera heima eða eitthvað annað 
Wednesday, May 09, 2012
It´s the final count down
Melkorka bíður spennt eftir afmælinu mínu, gaf mér meira segja blöð í dag sem hún hafði gert á leikskólanum og sagði að ég mætti sko opna í dag. Svo fylgdi með kort sem stóð á Til hamingju með, svaka stollt að hafa skrifað þetta sjálf.
Ég skellti mér svo í dekrið í dag, var byrjað á handsnyrtingu, svo farið í að lita og plokka og svo farið í andlitsbað og fékk höfuð og herðarnudd með og meira segja nudda hendurnar líka. Alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og ég er alla vega með litaðar augabrúnir í fyrsta sinn Meira segja litaði hún augahárin líka en veit ekki alveg hvort það sjáist eitthvað mikið.
Ég vaknaði við það í nótt að einhver var að labba ofaná bringunni á mér, henni greinilega vantaði smá athygli en virðist svo hafa gefist upp á því og farið fram. Er búin að setja teppið hennar á borðið inná baðherbergi fyrir neðan gluggann og þar er hún farin að liggja oft, miklu oftar heldur en þegar teppið var á gólfinu.
Monday, May 07, 2012
Þá er afmælisvikan mín runnin upp, er minnt á það reglulega hérna heima þar sem Melkorka telur niður í afmælið mitt fyrir mig. Ég tek svo smá forskot á sæluna og fer í 1,5 tíma dekur á miðvikudag sem ég fékk í afmælisgjöf frá Tótu og Kötu. Hef aldrei farið í svona áður, jaaa reyndar held ég eitthvað hálftíma nudd fyrir nokkrum árum og já 5 mínútna nudd þannig verður gaman að prufa þetta. Er held ég andlitsbað, litun og plokkun og svo eitthvað handardekur minnir mig.
Pössunin á Cindy gengur bara ágætlega, ekki tekið neina ketti inn aftur í slagsmál. Reyndar vakti hún okkur Melkorku báðar í nótt, stökk svo á tærnar á henni þannig Melkorku brá svo að hún fór að gráta. Svo vildi kötturinn bara fara að leika sér en svona hálf 5 að nóttu þá vil ég bara fá minn svefn 
Svo er það bara að undirbúa lokaprófið í ensku á afmælisdaginn minn. Eins gott að kennarinn gefi mér bara góða einkun fyrir það svona í afmælisgjöf en það er þá lokin á þessari önn, búin að fá einkunnina fyrir bókfærsluna þannig þá er bara um 1 önn eftir af þessari braut, eða um 11 einingar.
Thursday, May 03, 2012
Alveg nóg að gera í afmælum núna, Tóta átti afmæli 29. apríl og svo átti Þórir afmæli í gær, varð 11 ára og svo Ellen í dag og er orðin 9 ára. Pabbi var svona sniðugur að eiga 4 af 5 börnunum sínum á innan við hálfum mánuði, svo kemur Kata þarna einhversstaðar í janúar Já og ef ég fer múttu megin þá er Dýrley líka í september þannig þær tvær dreifa þessu aðeins smá.
Cindy er bara að aðlagast ágætlega heima, vakti mig í fyrranótt með einhverjum slagsmálum við annan kött sem elti hana inn. Hún sleppti þó innanhús slagsmálum í nótt en svaf samt eitthvað laust, sef vonandi betur í nótt. Kannski ekki alveg vön því að hafa kannski einhvern á ferðinni á næturnar Henni finnst samt oftast best þegar Melkorka er úti eða sofnuð, finnst einum of mikill hamagangur í henni, ekki samt eins og þessi köttur sé eitthvað rólegur  Melkorka suðar svo og suðar að setja upp trampólínið, reyndar orðið frekar langt síðan hún byrjaði á því þannig fer að koma tími á að setja það upp, og skipta um vatn í pottinum, hún skilur ekkert í því að eiga þetta tvennt til og geta ekkert notað það eins og er.....
Tuesday, May 01, 2012
Ég er víst komin með kisa í pössun eftir smá suð frá Kötu, Cindy greyið fær víst ekki nógu mikla athygli meðan Kata les og les fyrir prófin. Tók hana því með mér heim í gær og má segja að hún hafi verið úti meirihlutan af tímanum síðan hún kom hingað og hefur ennþá sem komið er skilað sér alltaf aftur inn. Meira segja búin að hitta nágrannakisuna og leist ekkert á hana.
Frí í dag útaf 1. maí og var aðallega bara chillað, kláraði reyndar að taka 2 heimapróf í ensku þannig styttist alltaf meira og meira í endann á því, held við eigum eftir að gera einn kafla í viðbót nema hún sé eitthvað búin að breyta áætluninni en lokaprófið verður alla vega í kringum afmælið mitt.
En þreytan farin að segja til sín þannig ég held ég fari bara að skríða uppí rúm fyrst prófin eru búin. Nóg að gera í vinnunni út þessa viku og svo bara helgi aftur og vonandi betra veður framundan, þannig kominn tími á að þrífa loksins pottinn og geta þá flatmagað í honum í sólinni, svona og vona þá að maður fái kannski einhvenr oggu ponsu lit 
Saturday, April 28, 2012
Og þá er bókfærslunni lokið
Ég er búin að ljúka síðustu verkefnunum í bókfærslu og meira segja skila þeim af mér þannig ég er þá búin með 3ja fagið á þessari önn eða reyndar bara annað þar sem ég fékk eitt metið. Enskan er þá bara eftir, búin að skila af mér verkefni fyrir þessa viku, svo er lokapróf í maí og held örugglega einhver fleiri verkefni í viðbót en hljótum að fara að fá upplýsingar um það bráðum, áttum alla vega að taka 5 kafla í þessari rándýru bók Reyndar ef maður heldur áfram þá dugar hún alveg fram í ensku 303 og ætti maður örugglega að verða orðin nokkuð góð í viðskiptaensku þá, jaaa eða kannski búin að læra eitthvað smá.
En lét tjékka á blessuðu framdekkinu mínu á fimmtudaginn þar sem loftið er alltaf að leka úr því og mældist meira segja 9 í því á miðvikudag og var fyllt á það en strax á fimmtudag var nærri allt farið aftur úr. Hélt það væri að leka framhjá ventli eða eitthvað álíka en þá er dekkið bara orðið svo þunnt á einhverjum innri stað eða blabla og hægt má segja að stinga allsstaðar skrúfjárni í gegnum það, fékk svo bráðabirgðaviðgerð og svo er bara að fara að huga að því að kaupa ný dekk sem er svo gaman þar sem þau eru svo ódýr, meira segja notuð dekk kosta sitt 
Ég var semsagt í fríi á fimmtudag og föstudag og náði þá að klára lærdóminn og meira segja fara í ræktina báða dagana, voða nice að geta eitthvað hreyft sig. Svo er bara að sjá hvort maður minnki ekki eitthvað ef ég næ að hreyfa mig og þá vonandi sofa betur eftir aðgerðina.
Friday, April 20, 2012
Það verður sérstakur dagur á morgun, síðasti dagurinn á 3ju hæðinni og svo verður það bara 4ða hæðin á mánudag. En deildin mín er að flytja sig upp um hæð og verðum við bara í því að klára að pakka niður í kassa á morgun og um helgina verða borð og allt það flutt einnig upp. Búið að vera að pakka niður undanfarið en morgundagurinn fer í að klára pökkun og mánudagurinn svo að koma öllu fyrir aftur þannig næstu 2 dagar í vinnunni verða aðeins svona öðruvísi. En við byrjum á því að vera ein þarna uppi fyrst en hinar deildarnar koma svo í 2 hollum í viðbót.
Við Melkorka ákváðum að hjóla í klippingu í gær og ótrúlegt en sátt þá náðum við þessu á tíma þótt ég hafi nú ekki verið alltof bjartsýn, gátum hinsvegar dundað okkur meira á bakaleiðinni en reyndar snjóaði svona af og til á leiðinni og við enduðum á að kaupa bleika vettlinga þar sem gleymdist að taka vettlinga fyrir hana þannig hún fékk bara mína. Þannig ég fékk bara ágætis hreyfingu í gær ásamt barninu en það verður gerð vonandi tilraun á morgun enn og aftur að ná hjálpardekkjunum af hjá henni.
Ég var svo jákvæð síðasta fimmtudag að ég fór í ræktina, fór svo hjólandi með Melkorku í leikskólann á föstudagsmorgun og hjólaði svo í ræktina, var þar í smá tíma og hjólaði aftur heim og lifði þetta allt af. Hafði ekki hreyft mig af viti í um 2 mánuði, eða síðan aðgerðin var þannig löngu kominn tími á það, svo er bara spurning hvenær næsta hreyfing verður 
Wednesday, April 11, 2012
Það er gott veður og vont veður til skiptis þessa dagana, alla vega kalt veður og bara svona ekta íslenskt veður en það er vonandi að vorið sé að fara að koma en í morgun var td. hvítt á heiðinni og núna um páskana snjóaði fyrir vestan en slapp alveg á norðurlandinu.
En við semsagt brunuðum norður í sveitina um páskana, miðað við veðurlýsingarnar þá bjóst ég við að vera veðurtept í einn dag í viðbót en svo var bara ekkert að veðrinu, alla vega þá leið sem ég fór og var meira segja bara sól og blíða uppá Holtavörðuheiði þannig maður gat ekkert kvartað, reyndar hvasst á köflum en fann ekkert fyrir því.
Ég varð einum of ofvirk í lærdómnum um páskana og komst svo að því að ég hefði ekki þurft að vera svona dugleg þannig ég þyrfti ekki í raun að læra næstu 1-2 vikurnar í öðru faginu, reyndar bara að taka eitt próf en svo hitt fagið þarf ég víst áfram að læra í, gerði minna í því fyrir norðan enda þarf ég að hlusta á diska og svara spurningum útfrá því.
Tuesday, April 03, 2012
Apríl mánuður kominn í hús
Þá er apríl kominn og meira segja 3 apríl ef ég ætla að vera alveg nákvæm. Páskarnir eru alveg handan við hornið og kannski að fara að verða tími að ákveða hvað maður geri yfir þá Enda bara rétt um 1,5 dagur eftir í vinnunni, mætti reyndar aðeins seinna í morgun þar sem ég fór með bílinn á verkstæði til að tengja við tölvu, hann er að víbra eitthvað á vissum hraða en hættir þegar ég sleppi bremsunni en tölvan fann reyndar ekkert út úr þessu. Var reyndar góður á leiðinni í bæinn í dag þannig kannski þurfti hann bara að komast í samband við tölvuna 
Það styttist svo óðum í flutninga hérna í vinnunni, við erum að fara að flytja upp um eina hæð en það verður í seinni part mánaðarins en á að reyna að gera það yfir helgi svo það trufli ekki starfsemina en okkar deild verður í fyrsta partinum á flutningunum þannig við verðum einar smá stund uppi áður en næsti partur flyst upp en það verður örugglega smá svona truflanir fram að því að ákveða hvernig allt eigi að vera....
Monday, March 26, 2012
Eða kannski meira fyrir norðan en hérna fyrir sunnan, erum alltaf með rok með þessu "góða" veðri hér. En ég ákvað að hjóla með skottunni í fimleikana á laugardagsmorguninn en það vantar reyndar smá loft í dekkin, hef ekkert pumpað í þau eftir veturinn og eftir að hjólið kom niður af lofti þannig ef ég hjólaði yfir einhvern smá stein þá fór það beint í rassinn á mér Fékk svo að fara heim til Ágústu og fá hennar hjálp að pumpa í dekkinn þegar fimleikarnir voru búnir og það var sko miklu auðveldara hjól heim heldur en þegar ég fór eftir að hafa farið með Melkorku.
Svo núna er bara stefnan að reyna að fara meira að hjóla með henni og reyndar já að koma þessum blessuðu hjálpardekkjum einhvern tímann af. Ég þarf nefnilega að fara að byggja upp þolið aftur, var alveg búin á því að hjóla þarna á laugardaginn og fór svo í göngutúr í gær og lagðist bara dauðuppgefin uppí rúm eftir það.
Ég er svo vonandi að fara í lokatjékkið á nefinu á mér á fimmtudaginn, vonandi er allt orðið í orden þótt mér finnist það ekki alveg vera í lagi en sé til hvað læknirinn segir yfir þessu hvort þetta tejlist vera eðlilegt eða ekki.....
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|