Kl 1 á ég tíma hjá lækni og fæ að vita hvort það eru einhverjar niðurstöður úr blóðprufunni sem ég fór í fyrir um hálfum mánuði síðan. Vonandi get ég þá farið að sitja á fundum og svona án þess að steinsofna 
Þessi vika bara orðin hálfnuð og er leynivinaleikur á fullu hérna í vinnunni, í gær fékk ég kerti og blað með fróleik um jólakerti með því. Pakkinn í dag kom öllum í kringum mig til að hlægja, í honum var spaghettí og 3 uppskriftir með til að elda spaghettí þannig greinilega einhver nálægt mér og svona kannski farin að gruna suma meira en aðra
En vikan endar svo á föstudag með jólaglöggi á Rauðará en verður það sameiginlegt með TR.
Katrín kíkti í smá stund til okkar á föstudagskvöldið, þau gistu á Hótel Selfossi um helgina, vinnan hans Kjarra var þar en þau komu svo við hjá okkur áður en þau héldu af stað heim á sunnudag og fengu smá að borða hjá okkur. Eftir að þau voru svo farin dreif ég mig í að baka heilar 7 kökusortir, reyndar fyrsta uppskriftin misheppnaðist smá en ég lærði bara af mistökunum og eins gott að lesa alveg nákvæmlega hvernig eigi að hræra og svona
Svo í gærkvöldi dreif ég mig í að prufa að gera ís og verður frólegt að smakka og sjá hvernig hann mun bragðast hjá mér.
Hilli hefur svo farið núna þessa viku með Melkorku á leikskólann þannig að ég hef getað mætt næstum því á réttum tíma í vinnuna.