<< October 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03
04 05 06 07 08 09 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31


If you want to be updated on this weblog Enter your email here:



rss feed

Tuesday, November 03, 2009
Og þá er sprautan að baki

   Í gær þegar ég var í vinnusímanum þá hringir gemsinn minn og sé ég að það er spítalinn að hringja, en þar sem ég var að tala við manneskju vinnutengt þannig ég gat nú ekki svarað í gemsann en svo þegar ég var loks búinn var gemsinn hættur að hringja.  Þannig ég hringi nú tilbaka til að sjá hvort sú í afgreiðslunni gæti nokkuð vitað afhverju það var verið að hringja í mig en þá hringir akkúrat gemsinn aftur þannig ég þakka bara konunni fyrir og svara í gemsann og var þá spurt hvort ég héti ekki Svanhildur og væri mamma hennar Melkorku, fékk alveg áfall fyrst þar sem ég hélt kannski að eitthvað hefði komið fyrir en þá var bara verið að færa tímann í svínaflensusprautuna og fékk ég tíma í dag, það er að segja í morgun þannig Melkorka er bara búin að fá sprautuna og þarf ekki að fara aftur Big Smile

   Í gær á heimleið þegar ég var að nálgast Ártúnsbrekkuna þá er einhver svaka æstur á eftir mér sem vill greinilega fara frammúr, eftir smá tíma fer hann að hamast á flautunni og liggur á henni og veifar öllum höndum útí lofitð en ég var nú svo svaka góð að halda mínum hraða, alveg á hámarkshraðanum enda sé ég hvar löggan var í brekkunni og ætlaði bara að sýna þessum manni góðverk, reyndar svona eftir á þá sá ég nú bara eftir því að hafa ekki sveigt frá og láta þennan fyrir aftan gefa í og vera þá böstaður á staðnum Shades  En góðverkið hafði víst yfirhöndina, á reyndar til að hægja bara á ef einhverjir láta svona á eftir mér ef ég er alveg á meira en hámarkshraða svona innanbæjar, get verið svo skemmtileg Shades

   Árni Gísli var svo í bænum í gær og ætlaði ég að reyna að hitta á hann en það heppnaðist ekki betur en það að ég bara missti af honum, fór aftur norður í morgun þannig það gengur bara vonandi betur næst.....

Posted at 14:20 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Sunday, November 01, 2009
Og þá er það nóvember

   Fyrsti nóvember er bara kominn í hús og þetta ár er líka bara alveg að verða búið, ótrúlegt hvað tíminn líður Shocked  Og þessi helgi er líka að baki en ég skellti mér í bæinn í gær að hitta stelpurnar, stefnan var að gista hjá Gullu en endaði svo bara á því að gista hjá Auði.

   Melkorka hefur svaka gaman af því að stinga útidyralyklinum núna í skránna en ég þarf oftast að snúa honum fyrir hana.  Núna í vikunni þá tekur hún lykilinn og setur hann í og ég sný og labba inn með henni og svo bara lokum við.  Það reyndar vildi svo ekki betur til heldur en að ég bara gleymdi að taka lykilinn með mér þannig hann var úti í skránni þangað til Hilli kom heim ca 1-2 tímum síðar Big Smile

   Við Melkorka fórum svo að baka saman köku í dag, hún nefnilega fékk þá flugu í hausinn í morgun að hún vildi baka köku þannig ég fór með henni í það þegar ég kom heim og bökuðum við skúffuköku, meira segja ótrúlegt en satt þá fékkst hún til að smakka 1-2 bita en át ekkert meira af henni, hefur aldrei borðað skúffukökur eða aðrar súkkulaðikökur, eða oftast bara kökur yfir höfuð.....

   Jæja maturinn tilbúinn þannig ég ætla að fara að skella mér í það að borða og svoddan, fangavaktin fer líka að byrja bráðlega.

Posted at 20:12 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Tuesday, October 27, 2009
Alveg að koma hádegismatur

   Vala er í mat núna en fer að koma úr honum þannig ég er alveg að komast að borða enda er ég alveg glorsoltin, átti ekkert epli til að fá mér áðan en ég hef verið að reyna að borða oftar yfir daginn, eða um 5 sinnum eins og er mælt með þannig fæ mér smotterí eins og epli eða svoleiðis á milli máltíða hérna í vinnunni Big Smile

   Skrapp í ræktina í gær en Katrín pössunarpía er víst veik þannig ég bruna og næ í Melkorku í dag, get því ekki unnið lengur en hún var reyndar veik í gær líka, gleymdi bara að láta mig vita af því en það fattaðist svona á þeim tíma sem átti að ná í Melkorku þannig það reddaðist og Katrín náði að bruna og ná í hana.

   Svo er það flensusprautan hjá Melkorku á fimmtudag þannig ég mæti aðeins seinna í vinnuna, fékk tíma fyrir hana kl 09:40 og svo er bara að sjá hvernig hún tekur sprautunni, margir eru víst að illt þar sem var sprautað og örugglega bara misjafnt hvernig fólk tekur þessu.  En tekið eftir síðustu daga að það er byrjað smá að kurra eða hún svona farin að hósta þannig það er greinilega að koma vetur, er oftast laus við "astmann" yfir sumartímann en það er vonandi að þetta vaxi svo bara alveg af henni með tíð og tíma.

Posted at 12:30 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Saturday, October 24, 2009
Ein sofnuð, ein eftir

   Guðrún Katrín er hjá okkur í pössun og eru þær frænkur saman uppí Melkorku rúmi en Melkorka er steinsofnuð en Guðrún er enn vakandi en ætti nú örugglega að fara að detta út bráðlega enda fóru þær báðar í íþróttaskólann í morgun.

   Ég komst svo bara tvisvar í ræktina í þessari viku og svo er týnt stykkið í þrekhjólið mitt hér heima til að festa sætið þannig ekki get ég farið að hjóla á því Shocked  Þarf að fara að reyna að gera betri leit og sjá hvort ég finni þetta ekki einhversstaðar, örugglega skrollað undir rúm en sýndist það ekki vera þar þegar ég kíkti þar undir í fljótheitum og Melkorka segist ekkert vita hvar það er.

   Eva kom svo hér í dag og þreif smá svo að það geti orðið hreint hér heima án þess að vikan sé eyðilögð fyrir mér, bara spurning hvort það verði þannig hjá Evu því hún lenti í einum árekstri í fyrra en hún fór alla vega gangandi út þannig svona í fljótheitum sýndist þetta vera í lagi Big Smile  En vonandi með áframhaldandi ferðum í ræktina þá fari allt að styrkjast hjá mér, reyni að taka bakæfingar með lóðum og fyrir axlir og brjóstvöðva líka þannig með tíð og tíma fer ég kannski að þola þrifin hér heima....

Posted at 23:16 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Wednesday, October 21, 2009
Fyrsti í sundi á morgun

   Á morgun eftir vinnu og ræktina þá skellum við mæðgur okkur í fyrsta sundtímann á námskeiði nr. 5 en það er víst komið að því að læra sundtökin núna.  Reyndi að útskýra fyrir Melkorku að hún væri að fara að læra að synda en þá svaraði hún bara nett tilbaka að hún kynni alveg að synda, en hefur samt ekkert á móti því að fara í sundið.  En ég stefni þá að vinna til um 4, bruna svo á Selfoss í ræktina og vera þar svona milli ca 5-6 og svo drífa mig heim og ná í skottuna og vera mætt í sundið korter í 7.

   Ég held áfram að vera dugleg og mæta 2-3svar í viku í ræktina, eða eftir því hvað ég kemst oft.  Síðustu viku komst ég bara tvisvar og þá er að sjá hvort ég nái þrisvar þá í þessari viku.  Ég hef náð einhverju smá af mér en þetta gengur hægt en hefur þó gengið eitthvað.  Þannig núna er bara stefnan að komast niður í næstu tölu en ég er svona á línunni að fara niður í hana, tek eina tölu í einu Big Smile

   Var svo að prufa að gera nýjar æfingar í ræktinni með lóð, fyrir axlarvöðva og svo aðrar fyrir brjóstvöðva og held það sé því að kenna að ég sé miklu verri þessa vikuna heldur en td þá síðustu, man ekki eftir að ég hafi verið að gera neitt öðruvísi en vanalega undanfarið svona dagsdaglega, enda er sjúkraþjálfarinn í fríi á föstudag þannig hentar að ég sé verri Wink  Skelli mér bara í ræktina á eftir og geri þessar æfingar aftur og sé hvernig ég verð, verður örugglega betra á endanum nema ég loksins fái mér þennan tíma sem ég á rétt hjá þjálfara og láti sýna mér hvað ég eigi að gera og hvað ekki....

Posted at 13:09 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Sunday, October 18, 2009
Og enn og aftur

   Kemur helgi og hún búin og ný vinnuvika framundan.  Þessi helgi hefur bara verið frekar róleg, vorum bara heima og skelltum okkur í íþróttaskólann á laugardag með Melkorku sem finnst þetta alltaf jafn gaman.  Réðst svo í herbergð með Melkorku áðan og náðum aðeins að taka smá til þannig lítur nú eitthvað betur út þar núna heldur en það gerði, endist örugglega alveg fram á morgundaginn Big Smile

   Ég er svo að fara að byrja í sundinu á fimmtudag með Melkorku, stefni þá alltaf á að fara í ræktina á undan og svo ná í skottuna og skella mér með hana í sund þannig fimmtudagar ættu alveg að vera vel pakkaðir hjá mér og Melkorka dauðuppgefin enda er sundið korter í 7 og verður örugglega aldrei þá komin heim fyrr en um 8 leytið.

   Var bara aðeins að kíkja í tölvuna, ætla svo að sjá hvort ég nenni að þvo eina vél í viðbót eða bara láta það nægja sem ég hef gert, fer allt eftir því hvernig útifatastaðan er hjá Melkorku fyrir leikskólavikuna Shades

Posted at 20:54 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Wednesday, October 14, 2009
Geysp geysp

   Jæja eftir skúringarnar mínar á miðnætti á laugardag þá svaf ég nú ekkert rosalega vel vegna verkja og vaknaði alltaf þegar var komin tími á að snúa vegna verkja og ógeðslega vont að hreyfa mig en nennti engan veginn að fara fram og fá mér töflu, gerði það bara þegar ég vaknaði Big Smile  Ég er samt öll að verða betri og finn miklu minna fyrir þessu, verkurinn kom einhversstaðar á vinstra hægrablaði þannig það er örugglega betra fyrir rétthenda manneskju Wink

   Á leiðinni í vinnuna í morgun var þoka uppá heiði og var ég eitthvað að keyra á tvöföldun og sé í afturbaksspeglinum (eða hvað sem þetta kallast nú aftur Shades) að það er bíll að fara frammúr bílum sem eru svolítið fyrir aftan mig og er hann alltaf að blikka með háu ljósunum og svo þegar hann nálgast mig, ennþá á hinni akreininni á tvöfölduninni sé ég að þetta er löggubíll með ljósin á, bláu ljósin sáust ekkert útaf þokunni en sá löngu á undan blikkið á milli háu og lágu ljósanna.  Svo þegar ég kem að þarna veginum sem er með vegriðinu þá hefur orðið bílslys rétt áður en maður fer niður brekkuna hjá Litlu Kaffistofunni.  Það er svartur bíll nærri uppí hrauninu og er þarna útskot hjá þessum stað þannig löggan, tækjabíll og sjúkrabíll eru allir þar þannig umferð var alla vega ekki stoppuð meðan ég keyrði þar í gegn en það voru ennþá bílar að koma, kom sjúkrabíll úr bænum sem þýðir að hann hefur þurft að keyra vegriðið á enda til að komast á slysstað.  Hef ekkert séð um þetta á mbl.is eða visir.is þannig vonandi var þetta ekki eins alvarlegt og það leit út fyrir að vera. En ég virðist alltaf ná að keyra reglulega framhjá slysum á Suðurlandsveginum Shocked

Posted at 10:40 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Sunday, October 11, 2009
Geri aðrir betur

   Jæja það er víst komið yfir miðnætti en Árni Gísli minn átti afmæli í gær og varð þá loksins jafngamall og ég og óska ég honum bara enn og aftur innilega til hamingju með daginn og vona að hann hafi átt góðan dag í sveitinni Big Smile

   Alveg geggjað laugardagskvöld svo hjá mér, var að ljúka við að kattarþvo yfir gólfin hérna, skúra smá yfir þau með gólfbóni þar sem sápan er víst búin, verð að muna eftir að kaupa hana næst þegar ég fer í búðina en örugglega bara mjög fínt að blanda gólfbóni saman við vatn og skúra yfir gólfin Shades  Ekki margir sem eru að dunda sér við þetta á miðnætti á laugardagskvöldi, held ég fái mér bara einn ís svona í verðlaun og til að kæla mig niður eftir þetta.

   Kamilla kom svo í dag og er hérna í nótt hjá okkur, Melkorka og hún eru steinsofandi saman í rúminu hennar Melkorku og þær eru búnar að vera á fullu síðan hún kom í dag og húsið var allt í rúst á tímabili en held að það sé aðallega herbergð hennar Melkorku núna, við tókum saman til þegar þær voru að klára að borða þannig mest allt dótið er nú komið inn aftur í herbergið.

Posted at 00:32 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Wednesday, October 07, 2009
Og nú skal segja...

   Vikan orðin hálfnuð og ég búin að fara einu sinni í ræktina í þessari viku, stefni svo á að fara aftur eftir vinnu í dag og svo aftur á morgun.  Vann alveg til 6 í gær en vinn þá rétt smá lengur en 4 í dag og á morgun þá.  Svo bráðum þéttist dagskráin ennþá meira eða eftir um hálfan mánuð.  Þá byrjar Melkorka í sundnámskeiði nr. 5 og held ég hafi náð að skrá hana á fimmtudögum kl 18:45 þannig ég yrði að fara beint úr ræktinni að sækja hana og svo beint í sund Big Smile  Hinn valmöguleikinn var á föstudögum kl 16:30 en þá er ég aldrei komin heim þannig gengur ekki alveg en hún verður þá á tímabili í sundi á fimmtudögum og svo í íþróttaskólanum á laugardögum.

   Það er svo foreldrafundur á leikskólanum í fyrramálið þannig ég ætti að leggja af stað uppúr 9 í bæinn og svo beint á fund hérna í vinnunni, hann á að byrja kl 10 og bara að sjá hvort ég nái þá að mæta á réttum tíma á hann, er alla vega búin að láta vita að ég gæti orðið smá sein.  En hádegið verður þá vel pakkað hjá mér á morgun en eftir hádegi ætti að vera rólegra, bara svona "venjuleg" vinna Wink

   Svo á enn eftir að koma í ljós hvað við Vala fengum í vinning fyrir samkepnnina sem við tókum þátt í hérna í vinnunni, alla vega síðustu tveir vinningar hjá mér voru gjafabréf út að borða, reyndar á sitthvorn staðinn þannig spurning hvort þetta sé þá líka út að borða Shades

Posted at 13:23 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Monday, October 05, 2009
Vika síðan síðast

   Það er víst orðin vika síðan ég bloggaði síðast en síðustu dagarnir í síðustu viku í vinnunni voru frekar mikið busy, ég stoppaði varla og var bara útum allt og kom alveg dauðuppgefin heim enda voru það bæði fundir og fara svo útum allt hús og sinna hinu og þessu, svona aðeins meira heldur en svona dagsdaglega en þetta ætti nú að vera svona venjulegt á næstunni, bara einbeita mér umsóknum núna, reyndar held einn fundur í þessari viku sem ég veit um en ekkert þá hlaup hingað og þangað aftur á næstunni Big Smile

   Það snjóaði svo uppá heiði á föstudag, strax um morgunin þegar ég fer yfir þá eru bílar komnir út í kant og búið að yfirgefa þá en ég var á Rovernum alla vikuna og hann er á sumardekkjum þannig ég fór bara varlega yfir, röðin sem ég var í fór líka ekkert hraðar en 60 þegar hún fór sem hraðast.  En svo á leið heim kom ég við í Kringlunni og kippti Hlyn með sem var hjá okkur um helgina ásamt Evu mömmu sinni en við komum við í Hafnarfirði og skiptum um bíl, ég fékk Audi-inn minn aftur og á vetrardekkjum þannig ég spændi framhjá öllum uppá heiði á leiðinni heim, enda ekki margir komnir á vetrardekkin, en Hilli var svo góður að fara með bílinn og láta setja vetrardekkin undir enda á veðrið víst að vera eitthvað vetrarlegt á næstunni og það þýðir að það verðir snjór og hálka á heiðinni.

Posted at 11:21 by svana
Viltu segja eitthvað?  

Next Page