|
|
 |
 |
Monday, September 28, 2009
Hrossaréttarhelgi að baki
Þá erum við komin aftur heim eftir Laufskálaréttarhelgina og veðrið lék nú ekki alveg við mann. Fórum loksins af stað rétt fyrir 5 úr bænum og uppá Holtavörðuheiði var einhver smá snjór og hálka en svo í kringum Víðines var hvítt yfir öllu og eftir sem við keyrðum lengra í Húnavatnssýslunum þá hvarf svo snjórinn og rigninginn tók við. Þegar við fórum svo Þverárfjallið þá var aftur kominn snjór og vel af honum þar, alveg nokkra cm þykkt yfir öllu og veginum þá líka.
Hilli ætlaði svo að fara út með strákunum á föstudagskvöldið og hleypa mér þá á ballið á laugardagskvöldið, skiptast á að vera með Melkorku heima í sveitinni en hann fór svo á endanum ekkert út á föstudaginn þannig ég fór bara með pabba á ball á laugardaginn og Hilli var svo heima með Melkorku sem var reyndar steinsofnuð áður en ég fór út, alveg dauðuppgefin eftir daginn 
En ég skrapp smá stund fyrir ballið heim til hennar Öbbu og hitti hana svo aftur þegar hún var mætt á ballið og Árni Gísli var svo auðvitað mættur þar líka ásamt sinni konu og alveg geggjað að hitta þau og taka smá tjútt með þeim, reyndar styttra síðan ég hitti Árna og örugglega verið eitthvað um 2004 kannski þegar ég tjúttaði síðast með Öbbu þannig alveg kominn tími til 
Thursday, September 24, 2009
Leikskólinn var lokaður eftir hádegi í dag útaf minningarathöfninni um hana Bylgju, Ágústa náði í Melkorku á leikskólann og ég náði svo í hana til hennar en tók með mér svo aukagrís heim þannig það eru tveir orkuboltar núna hlaupandi hérna um. Svo á morgun er haustþing hjá leikskólum landsins þannig við mæðgur verðum heima, svona að mestu. Við þurfum að pakka svo niður í töskur í kvöld, Hilli fer að vinna á morgun og við Melkorka brunum svo í bæinn, ef Auður er í fríi á morgun þá förum við eitthvað að brasa með henni annars verðum það bara við Melkorka og svo er bara að bíða eftir að Runni verður búinn að vinna, ætti að vera búinn um 2 og svo er það sturta og svona og þá leggjum við af stað norður í Skagafjörðinn en Auður og Runni ætla að koma með okkur í bíl. Svo eru það sjálfar Laufskálaréttir á laugardaginn en það verður örugglega svaka stuð að vanda, fyrir utan það auðvitað að ég fer ekki ríðandi, hef ekki gert það síðan 2004  2005 var ég ólétt og við fórum þá ekki, við Melkorka fórum 2006 en þá var hún bara um hálfs árs og svo 2007 byrjaði árekstradæmið mitt þannig ég bara efast um það að bakið haldi það út að vera á hestbaki
Sunday, September 20, 2009
Næst síðasta helgin í sept
Þá er næst síðasta helgi í september senn á enda og næstu helgi er það svo norðurferð í Laufskálaréttir og þá er bara október á næsta leyti, mánuðirnir alveg fljúga áfram  En ég er í fríi á föstudaginn því það er haustþing hjá leikskólum í landinum þannig ég verð heima með Melkorku. Ég hef svo verið dugleg minnir mig síðustu 3 vikurnar, en hef verið að mæta svona 3svar sinnum í ræktina í viku, held frekar 3 vikur en 4 vikur en hvað er ég að telja, þetta fer svo vonandi að skila einhverjum árangri bráðlega, svona reynt að taka líka matarræðið eitthvað í gegn og borða oftar á dag eins og á víst að gera. En ætla að fara að skríða uppí rúm, þarf að klára að ganga frá fyrir Melkorku á morgun, var að þvo útifötin hennar og þau eru í þurrkaranum núna og svona eitt og annað áður en ég fer í vinnuna á morgun.
Thursday, September 17, 2009
Fór í dag eftir vinnu að hitta aftur lækninn sem sendi mig í sneiðmyndatökuna, þetta voru þrjár myndir og sást eitthvað á þeim öllum en ekkert það mikið að ég þurfi einhverjar aðgerðir eða eitthvað svoleiðis. Kannski seinna meir gæti ég reyndar fengið þá sterasprautu í öxlina til að reyna að losna við það sem liggur þarna undir og veldur verkjunum þar.
Svo með hryggjaliðina og það þá eru einhver lítil slit farin að myndast en minniháttar og svo þarna niðri á mjóbakinu og þar þá er einhver bunga og þegar þetta eitthvað fer til hliðar þá veldur það verkjum sem þá fara niður í fætur / fótinn eða eitthvað álíka, svona ef ég skildi þetta alveg rétt hjá honum. Ég þarf bara að vera að dugleg að hreyfa mig og þá rétt, passa að setja bakið þá ekki í miklar sveigjur og beygjur þannig ég fer kannski að drífa mig í því að fá þjálfara til að fara þá yfir hvaða tæki er best fyrir mig að nota í ræktinni.
Hilli sofnaði svo á undan Melkorku en Melkorka er líka sofnuð núna þannig ég er bara að spá að fara að skríða uppí rúm líka enda alveg dauðþreytt.
Tuesday, September 15, 2009
Fyrsti vinnudagurinn búinn
Þá er mánudagurinn má segja bara búinn og ég er á leiðinni að skríða uppí rúmið enda HIlli sofnaður á sófanum og Melkorka löngu sofnuð og ég bara eitthvað hérna ein vakandi og alveg að detta útaf. En helgin er semsagt á enda og endaði ég bara á því að fara í annað partýið á laugardaginn en hitti í staðin Önnu Láru og þá sem voru í afmælinu hjá henni bara niðri í bæ, en ég var alveg að detta útaf hjá Kristínu og hefði alveg verið til í að fara að sofa þá en ég fékk að krassa hjá Gullu og hún var niðr í bæ þannig ég rölti á endanum um 2 leytið þangað en vorum svo komnar heim til hennar að sofa um 6 leytið, entist alveg ótrúlega lengi miðað við þreytu og hvað ég var líka edrú miðað við þær  Svo í dag þegar ég kom heim og athugaði eMailið þá biðu ekki góðar fréttir, ein sem var að vinna á deildinni hjá Melkorku og var mikið í kringum hana, var með hennar hóp alltaf þegar hóparnir voru að vinna saman dó í gær. Melkorka var að tala um hana í síðustu viku og hélt ég því að hún væri komin aftur til starfa og meiri segja spurðist fyrir um það á leikskólanum hvort hún væri komin aftur og ekki var það svo, hún var alveg yndisleg kona sem Melkorka dýrkaði
Friday, September 11, 2009
Það gerir ekkert annað en að rigna og rigna núna og líka keyri ég núna oft á milli með rúðuþurrkurnar á fullu. Fínt þá bara að vera að vinna inni í staðin fyrir að rennblotna úti við.
En ég fékk semsagt símhringingu í gær og var verið að bóka mig í segulómun og komst ég bara strax að í dag þannig ég hætti að vinna um 2 leytið og brunaði útá Domus Medica, þetta er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem ég hef gert enda í um klukkutíma þarna inni, fór reyndar einu sinni út í millitíðinni því þá þurfti að breyta til þegar átti að taka mynd af öxlinni á mér En svo er bara að sjá hvort það komi eitthvað út úr þessum myndum.
Ég er svo boðin í tvö partý í kvöld, annað hjá marsbúagellunum og svo er seinbúin afmælisveisla hjá Önnu Láru og ég ætla að reyna að pússla þessu einhvern veginn saman svo ég geti nú mætt á báða staðina 
Monday, September 07, 2009
Helgin er bara komin og farin og ég búin að vinna í dag og skella mér smá í ræktina og er semsagt komin heim og kvöldmaturinn á næsta leyti. Óvissuferðin á föstudaginn var rölt um Þingholtin með konu sem heitir Birna og var að segja sögu staðarins, fórum svo í bakgarð hjá einhverjum Gullsmið sem heitir Ófeigur eða búðin heitir það og fengum svo að þjóðstarta málverkasýningu sem var uppá loftinu og var listamaðurinn að fara yfir myndirnar sína með okkur. Svo var endað á Den Danske Kro þar sem var boðið uppá snittur og bjórin þar var á svaka tilboði, glasið kostaði heilar 700 kr, aldrei séð annað eins tilboð 
Svo á laugardaginn pikkaði Hilli og Melkorka mig upp og brunuðum við útí Grindavík en Melkorka varð þar eftir en Dýrley átti afmæli á laugardaginn og var barnaafmælið þá en fjölskyldan svo á sunnudag. Ég varð svo eftir í bænum og var hjá Gullu frammá kvöld, eða þangað til Auður og Runni voru loks tilbúin og var þá brunað í Keflavík, vorum það sein fyrir að við horfum á flugeldasýninguna bara á Reykjanesbrautinni en ég skemmti mér ekkert smá vel heima hjá Dröfn og Gunnari en reyndar gisti ekki núna, fór aftur í bæinn svo um nóttina með þeim og gisti svo hjá Gullu og sváfum við bara út, hún var að verða 2 þegar ég skreið loksins frammúr og dreif mig að gera ready fyrir afmælið hjá Dýrley 
Wednesday, September 02, 2009
Fór í skoðun hjá bæklunarlækninum í gær og áður en hann klárar að gera þessa læknaskýrslu vill hann senda mig í segulómskoðun af brjósti, baki og lendhrygg og fá líka mynd af hægri öxlinni. Þannig ég fór í morgun á Domus Medica til að panta tíma í myndatöku og var tekið við beiðninni minni og mér tilkynnt að það yrði hring tí mig en það væri smá bið og ekkert meir. Fékk svo hringinu núna áðan, vantaði víst kennitöluna mína inná beiðnina en þá sagði konan mér í símanum að tækið væri bilað og því væri enn ekki farið að bóka í það þannig ég þarf að bíða örugglega slatta. Frétti svo hér í vinnunni að það fór víst stóll í tækið núna held ég 20. ágúst og getur tekið um 3 vikur að slökkva á því, fjarlægja stólinn og fara yfir tækið hvort það sé eitthvað skemmt og svo kveikja á því aftur og þá er örugglega langur listi á undan mér í myndatöku En þegar ég kemst loksins að þá á ég að mæta aftur til læknisins þegar hann er búinn að fá niðurstöðurnar.
En á hinn bóginn þá nálgast helgin óðum, það er víst mæting kl hálf 5 upp við Hallgrímskirkju og ekki vitum við neitt meira en held við löbbum eitthvert þaðan en annars er aldrei að vita, hvort Hjálpartækjamiðstöðin komi þangað eða hvað, spennandi að sjá en þau eru náttúrlega inní SÍ pakkanum þótt það sé þetta langt á milli staðanna. Afmælisveislan hennar Dýrleyar fyrir fullorðna verður svo á sunnudaginn en barnaafmælið á laugardaginn, hún á afmæli á laugardaginn sjálfan, verða 8 ára skvísan.
Sunday, August 30, 2009
Þá er sunnudagur runninn upp, ég sit hérna heima með tvær skottur en Guðrún Katrín kom í heimsókn í gær og fékk svo að gista og eru þær stöllur vaknaðar og eru að snæða á morgunmat núna.
Við skelltum okkur svo í 50 ára afmæli í gær og Hilli fór eitthvert annað á eftir þannig við fórum á tveimur bílum. Ég lenti svo í því skemmtilega atviki að stuttu áður en við fórum heim þá ákvað rennilásinn á kjólnum mínum að gefast upp og klofnaði í tvennt Man ekki alveg hvað þessi kjóll er gamall en aldrei lent í svona áður, rétt komst svo úr honum heima þar sem ég náði ekki að renna því niður sem var uppi en kom honum svo á endanum niður um mig og þarf svona að skoða það hvort ekki sé hægt bara að skipta um rennilás ef það er ekki of mikið mál....
Svo styttist í tímann hjá lækninum en hann er núna á þriðjudaginn og verður fróðlegt að sjá hvað kemur út úr því, hvort hann getur sirkað út hvaða áverkar komu fyrir í hvaða slysi, held það sé hans verk að finna það svona út.
Wednesday, August 26, 2009
Ég bara búin að standa mig vel þessa vikuna, fór í ræktina á mánudag og í dag og vann lengur í gær og sé svo til hvort ég vinni lengur á morgun eða fari í ræktina. En Katrín sem nær stundum í Melkorku fer ekki í fimleika í vetur og við Hilli ákváðum að nota smá tækifærið og leyfa henni þá að ná í Melkorku oftar þannig ég geti þá farið að mæta eitthvað af viti í ræktina, staðin fyrir svona bara þegar ég kemst við og við.
Það eru bara víst 2 dagar eftir af þessari vinnuviku og helgin framundan með 50tugs afmæli en helgin þar á eftir verður reyndar aðeins pakkaðri og er bara komin fín skráning í óvissuferðina, veit reyndar ekkert hvað koma margir úr Hjálpatækjamiðstöðinni enda er þeirra skráningarlisti þar en eins og af okkar sviði/deild þá eru held ég nærri allir að fara nema sýnist 2 sem hafa þá góða ástæðu, verða ekki á landinu.
Ég fékk svo hringingu á leiðinni heim í gær og er loksins þá komin með tíma hjá bæklunarlækninum en ég fer til hans 1. september þannig það er bara rétt um vika í það.
|
 |
 |
 |
 |
 |
 |
|
|