|
Vikan orðin hálfnuð og ég búin að fara einu sinni í ræktina í þessari viku, stefni svo á að fara aftur eftir vinnu í dag og svo aftur á morgun. Vann alveg til 6 í gær en vinn þá rétt smá lengur en 4 í dag og á morgun þá. Svo bráðum þéttist dagskráin ennþá meira eða eftir um hálfan mánuð. Þá byrjar Melkorka í sundnámskeiði nr. 5 og held ég hafi náð að skrá hana á fimmtudögum kl 18:45 þannig ég yrði að fara beint úr ræktinni að sækja hana og svo beint í sund Það er svo foreldrafundur á leikskólanum í fyrramálið þannig ég ætti að leggja af stað uppúr 9 í bæinn og svo beint á fund hérna í vinnunni, hann á að byrja kl 10 og bara að sjá hvort ég nái þá að mæta á réttum tíma á hann, er alla vega búin að láta vita að ég gæti orðið smá sein. En hádegið verður þá vel pakkað hjá mér á morgun en eftir hádegi ætti að vera rólegra, bara svona "venjuleg" vinna Svo á enn eftir að koma í ljós hvað við Vala fengum í vinning fyrir samkepnnina sem við tókum þátt í hérna í vinnunni, alla vega síðustu tveir vinningar hjá mér voru gjafabréf út að borða, reyndar á sitthvorn staðinn þannig spurning hvort þetta sé þá líka út að borða |
| Leave a Comment: |