|
Jæja það er víst komið yfir miðnætti en Árni Gísli minn átti afmæli í gær og varð þá loksins jafngamall og ég og óska ég honum bara enn og aftur innilega til hamingju með daginn og vona að hann hafi átt góðan dag í sveitinni Alveg geggjað laugardagskvöld svo hjá mér, var að ljúka við að kattarþvo yfir gólfin hérna, skúra smá yfir þau með gólfbóni þar sem sápan er víst búin, verð að muna eftir að kaupa hana næst þegar ég fer í búðina en örugglega bara mjög fínt að blanda gólfbóni saman við vatn og skúra yfir gólfin Kamilla kom svo í dag og er hérna í nótt hjá okkur, Melkorka og hún eru steinsofandi saman í rúminu hennar Melkorku og þær eru búnar að vera á fullu síðan hún kom í dag og húsið var allt í rúst á tímabili en held að það sé aðallega herbergð hennar Melkorku núna, við tókum saman til þegar þær voru að klára að borða þannig mest allt dótið er nú komið inn aftur í herbergið. |
| Leave a Comment: |