|
Jæja eftir skúringarnar mínar á miðnætti á laugardag þá svaf ég nú ekkert rosalega vel vegna verkja og vaknaði alltaf þegar var komin tími á að snúa vegna verkja og ógeðslega vont að hreyfa mig en nennti engan veginn að fara fram og fá mér töflu, gerði það bara þegar ég vaknaði Ég er samt öll að verða betri og finn miklu minna fyrir þessu, verkurinn kom einhversstaðar á vinstra hægrablaði þannig það er örugglega betra fyrir rétthenda manneskju 
Á leiðinni í vinnuna í morgun var þoka uppá heiði og var ég eitthvað að keyra á tvöföldun og sé í afturbaksspeglinum (eða hvað sem þetta kallast nú aftur ) að það er bíll að fara frammúr bílum sem eru svolítið fyrir aftan mig og er hann alltaf að blikka með háu ljósunum og svo þegar hann nálgast mig, ennþá á hinni akreininni á tvöfölduninni sé ég að þetta er löggubíll með ljósin á, bláu ljósin sáust ekkert útaf þokunni en sá löngu á undan blikkið á milli háu og lágu ljósanna. Svo þegar ég kem að þarna veginum sem er með vegriðinu þá hefur orðið bílslys rétt áður en maður fer niður brekkuna hjá Litlu Kaffistofunni. Það er svartur bíll nærri uppí hrauninu og er þarna útskot hjá þessum stað þannig löggan, tækjabíll og sjúkrabíll eru allir þar þannig umferð var alla vega ekki stoppuð meðan ég keyrði þar í gegn en það voru ennþá bílar að koma, kom sjúkrabíll úr bænum sem þýðir að hann hefur þurft að keyra vegriðið á enda til að komast á slysstað. Hef ekkert séð um þetta á mbl.is eða visir.is þannig vonandi var þetta ekki eins alvarlegt og það leit út fyrir að vera. En ég virðist alltaf ná að keyra reglulega framhjá slysum á Suðurlandsveginum 
|