|
Á morgun eftir vinnu og ræktina þá skellum við mæðgur okkur í fyrsta sundtímann á námskeiði nr. 5 en það er víst komið að því að læra sundtökin núna. Reyndi að útskýra fyrir Melkorku að hún væri að fara að læra að synda en þá svaraði hún bara nett tilbaka að hún kynni alveg að synda, en hefur samt ekkert á móti því að fara í sundið. En ég stefni þá að vinna til um 4, bruna svo á Selfoss í ræktina og vera þar svona milli ca 5-6 og svo drífa mig heim og ná í skottuna og vera mætt í sundið korter í 7. Ég held áfram að vera dugleg og mæta 2-3svar í viku í ræktina, eða eftir því hvað ég kemst oft. Síðustu viku komst ég bara tvisvar og þá er að sjá hvort ég nái þrisvar þá í þessari viku. Ég hef náð einhverju smá af mér en þetta gengur hægt en hefur þó gengið eitthvað. Þannig núna er bara stefnan að komast niður í næstu tölu en ég er svona á línunni að fara niður í hana, tek eina tölu í einu Var svo að prufa að gera nýjar æfingar í ræktinni með lóð, fyrir axlarvöðva og svo aðrar fyrir brjóstvöðva og held það sé því að kenna að ég sé miklu verri þessa vikuna heldur en td þá síðustu, man ekki eftir að ég hafi verið að gera neitt öðruvísi en vanalega undanfarið svona dagsdaglega, enda er sjúkraþjálfarinn í fríi á föstudag þannig hentar að ég sé verri |
| Leave a Comment: |