|
Vala er í mat núna en fer að koma úr honum þannig ég er alveg að komast að borða enda er ég alveg glorsoltin, átti ekkert epli til að fá mér áðan en ég hef verið að reyna að borða oftar yfir daginn, eða um 5 sinnum eins og er mælt með þannig fæ mér smotterí eins og epli eða svoleiðis á milli máltíða hérna í vinnunni Skrapp í ræktina í gær en Katrín pössunarpía er víst veik þannig ég bruna og næ í Melkorku í dag, get því ekki unnið lengur en hún var reyndar veik í gær líka, gleymdi bara að láta mig vita af því en það fattaðist svona á þeim tíma sem átti að ná í Melkorku þannig það reddaðist og Katrín náði að bruna og ná í hana. Svo er það flensusprautan hjá Melkorku á fimmtudag þannig ég mæti aðeins seinna í vinnuna, fékk tíma fyrir hana kl 09:40 og svo er bara að sjá hvernig hún tekur sprautunni, margir eru víst að illt þar sem var sprautað og örugglega bara misjafnt hvernig fólk tekur þessu. En tekið eftir síðustu daga að það er byrjað smá að kurra eða hún svona farin að hósta þannig það er greinilega að koma vetur, er oftast laus við "astmann" yfir sumartímann en það er vonandi að þetta vaxi svo bara alveg af henni með tíð og tíma. |
| Leave a Comment: |