Entry: Og þá er það nóvember Sunday, November 01, 2009



   Fyrsti nóvember er bara kominn í hús og þetta ár er líka bara alveg að verða búið, ótrúlegt hvað tíminn líður Shocked  Og þessi helgi er líka að baki en ég skellti mér í bæinn í gær að hitta stelpurnar, stefnan var að gista hjá Gullu en endaði svo bara á því að gista hjá Auði.

   Melkorka hefur svaka gaman af því að stinga útidyralyklinum núna í skránna en ég þarf oftast að snúa honum fyrir hana.  Núna í vikunni þá tekur hún lykilinn og setur hann í og ég sný og labba inn með henni og svo bara lokum við.  Það reyndar vildi svo ekki betur til heldur en að ég bara gleymdi að taka lykilinn með mér þannig hann var úti í skránni þangað til Hilli kom heim ca 1-2 tímum síðar Big Smile

   Við Melkorka fórum svo að baka saman köku í dag, hún nefnilega fékk þá flugu í hausinn í morgun að hún vildi baka köku þannig ég fór með henni í það þegar ég kom heim og bökuðum við skúffuköku, meira segja ótrúlegt en satt þá fékkst hún til að smakka 1-2 bita en át ekkert meira af henni, hefur aldrei borðað skúffukökur eða aðrar súkkulaðikökur, eða oftast bara kökur yfir höfuð.....

   Jæja maturinn tilbúinn þannig ég ætla að fara að skella mér í það að borða og svoddan, fangavaktin fer líka að byrja bráðlega.

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments