|
Í gær þegar ég var í vinnusímanum þá hringir gemsinn minn og sé ég að það er spítalinn að hringja, en þar sem ég var að tala við manneskju vinnutengt þannig ég gat nú ekki svarað í gemsann en svo þegar ég var loks búinn var gemsinn hættur að hringja. Þannig ég hringi nú tilbaka til að sjá hvort sú í afgreiðslunni gæti nokkuð vitað afhverju það var verið að hringja í mig en þá hringir akkúrat gemsinn aftur þannig ég þakka bara konunni fyrir og svara í gemsann og var þá spurt hvort ég héti ekki Svanhildur og væri mamma hennar Melkorku, fékk alveg áfall fyrst þar sem ég hélt kannski að eitthvað hefði komið fyrir en þá var bara verið að færa tímann í svínaflensusprautuna og fékk ég tíma í dag, það er að segja í morgun þannig Melkorka er bara búin að fá sprautuna og þarf ekki að fara aftur Í gær á heimleið þegar ég var að nálgast Ártúnsbrekkuna þá er einhver svaka æstur á eftir mér sem vill greinilega fara frammúr, eftir smá tíma fer hann að hamast á flautunni og liggur á henni og veifar öllum höndum útí lofitð en ég var nú svo svaka góð að halda mínum hraða, alveg á hámarkshraðanum enda sé ég hvar löggan var í brekkunni og ætlaði bara að sýna þessum manni góðverk, reyndar svona eftir á þá sá ég nú bara eftir því að hafa ekki sveigt frá og láta þennan fyrir aftan gefa í og vera þá böstaður á staðnum Árni Gísli var svo í bænum í gær og ætlaði ég að reyna að hitta á hann en það heppnaðist ekki betur en það að ég bara missti af honum, fór aftur norður í morgun þannig það gengur bara vonandi betur næst..... |
| Leave a Comment: |